Söluskilmálar

Skilmálar

Samþykki verkkaupi tilboð samþykkir hann jafnframt eftirfarandi skilmála sem því fylgja.

Varan sem boðin er, er sérsmíðuð framleiðsla. Aðeins það sem fram kemur í tilboðinu er innifalið en annað ekki. Tilboðið er gert með fyrirvara um verðbreytingar sem verða samkvæmt gengisskráningu frá tilboðsdegi til greiðsludags. Séu athugasemdir við vöruna skulu þær tilkynntar innan 15 daga frá afhendingu. Varan er eign LUX Glugga ehf. þar til hún hefur verið greidd að fullu.

Greiðsluskilmálar

Við undirskrift tilboðs greiðist 50% staðfestingargjald nema um annað hafi verið samið. Vara fer ekki í framleiðslu fyrr en staðfestingargjald hefur verið greitt. 50% eftirstöðvar eru síðan til greiðslu fyrir afhendingu.

Tilboð er gert með fyrirvara um verðbreytingar sem kunna að verða á byggingarvísitölu, gengi gjaldmiðla og almennri verðlagsþróun frá tilboðsdegi til og með greiðsludags.

Afhending

Afhending vörunnar fer fram á starfstöð LUX Glugga ehf. og skal miða við uppgefin afgreiðsludag. Afgreiðsludagur er aðeins áætlaður og háður verkefna- og hráefnisstöðu hverju sinni. LUX Gluggar ehf. er ekki undir neinum kringumstæðum eða skilyrðum skylt til þess að bæta möguleg tjón sem kunna að hljótast af ef raunverulegur afgreiðsludagur fer fram yfir áætlaðan uppgefinn afgreiðsludag. Telji verkkaupi að hluti (t.d. þéttigúmí, klossa, glerlista) vanti í afgreiddar vörur skal tilkynna það inna þriggja virka daga annars telst varan að fullu afgreidd. Vara telst afgreidd þegar að hún er farin af starfstöð LUX Glugga.

Afhending á vörum í sérlit ,sem ekki er til á lager, getur dregist um 2-4 vikur.

Ábyrgð

Varan er á ábyrgð LUX Glugga ehf. þangað til hún er afhent. Hafi varan eða hluti hennar þó ekki verið afhent innan 15 daga frá því að verkkaupi hefur sannarlega verið tilkynnt að vara eða hluti hennar, sé tilbúin til afhendingar færist ábyrgð á vörunni yfir til verkkaupa. Verkkaupi ber þá fulla ábyrgð á öllu tjóni eða rýrnum sem vara kann að verða fyrir. Eftir 10 daga frá því að verkkaupa hefur sannarlega verið tilkynnt að, varan eða hluti hennar, sé tilbúin til afhendingar áskilur LUX Gluggar ehf. sér rétt til þess að leggja á verkkaupa gjald fyrir geymslu vörunar. Gjaldið er 10.000kr + VSK á hvert vörubretti á viku.